Löng helgi í allt haust
Ég efast um að það séu allir jafn heppnir og ég með studnatöflu þetta haustið. Ég er yfirleitt aldrei í skólanum lengur en til hádegis, og aldrei í skólanum á föstudögum! Er eigilega bara með samviskubit yfir þessu, samt er ég í sex fögum! Skil þetta ekki alveg EN mar er nú ekki að kvarta! :D Býst reyndar við að verkefnin eigi alveg eftir að fylla vel upp í allan þennan "frítíma". Munur að geta bara farið til Rvk á fimmtudögum í stað föstudögum, án efa eftir að lengja helgina talsvert. Frekar svekkjandi samt hvað Jónþór er lengi á föstudögum, yfirleitt til 4-5, og það eru tímar sem er skildumæting í...þannig ekki alveg að passa saman hjá okkur. En við finnum e-ð út úr því. Mig langar nefnilega líka að vera dugleg að fara til Eyja í vetur að heimsækja öll krílin hennar Dóru systir, strákana og litla babíið sem er væntanlegt :)